SKILMÁLAR

Velkomin í vefverslun Sundskóla Sóleyjar sem er í eigu og rekstri Sundskóla Sóleyjar Kt. 2701642859. Hér eftir verður notast við „við“, „okkur“ og „okkar“ þegar átt er við Sundskóla Sóleyjar
Vinsamlegast lestu skilmálana vandlega áður en þú verslar í vefverslun okkar. Með því að nota vefverslun Sundskóla Sóleyjar samþykkir þú þessa skilmála.

1. PERSÓNUUPPLÝSINGAR
Við virðum friðhelgi þína og meðhöndlum persónuupplýsingar í samræmi við lög nr. 77/200 um persónuvernd og meðferð persónuupplýsinga. Þegar verslað er í vefverslun þarf að gefa upp nafn, heimilisfang og netfang. Þessar upplýsingar eru eingöngu nýttar til að ganga frá pöntun, en kaupsaga er vistuð áfram á öruggu svæði sem er læst. Athugið að kortanúmer eru aldrei geymd á vefsvæðum okkar og einungis er hægt að sjá tegund greiðslu, ef fletta þarf upp pöntun. Við deilum aldrei persónuupplýsingum með þriðja aðila.

2. VÖRUR TIL EINKANOTA OG NIÐURHAL
Vörurnar í vefverslun Sundskóla Sóleyjar eru til persónulegra nota eingöngu. Kaup á námskeiðum eru svokölluð “sýndarviðskipti” sem þýðir að þegar þú hefur greitt fyrir námskeiðið getur þú hlaðið niður skírteini, sem sannar kaupin. En sú kvittun sem þú færð um hæl þegar viðskiptum er lokið, er einnig nægjanleg kvittun fyrir kaupunum þegar þú mætir á námskeiðið.

3. VERÐ
Uppgefið verð í vefverslun okkar er í íslenskum krónum. Athugið að verðbreytingar eru ekki auglýstar fyrirfram.
Virðisaukaskattur er innifalinn í verði og ekkert kostar að fá vörur sendar innanlands.

4. FERILL PANTANA
Þegar þú hefur lokið við að panta í vefverslun færðu tölvupóst með pöntunarnúmeri og kvittun fyrir vörukaupum. Þú færð einnig aðgang að hlekk til að hlaða niður skírteini, ef um “sýndarviðskipti” eða kaup á námskeiðum er að ræða. Ef þú hins vegar kaupir vöru, sem skal sendast, mun þér berast staðfesting þess efnis og þá gildir slíkt sem kaupkvittun og afgreiðsla. Við áskiljum okkur rétt til að bakfæra allar pantanir ef grunur um einhvers konar misferli vaknar. Ef þú kaupir vöru sem skal sendast með póstinum, þá eru þær afgreiddar alla virka daga, en póstsending getur tekið allt að 6 dögum.

5. GREIÐSLULEIÐIR
Eftirfarandi kort er hægt að nota í vefverslun Sundskóla Sóleyjar:
Visa
Mastercard
Greiðslan mun birtast á kortayfirliti þínu á sama hátt og almennar færslur í verslun.

6. GREIÐSLUVANDAMÁL
Ef vandamál vegna greiðslu koma upp eftirá vegna greiðslu (t.d. vákort) áskiljum við okkur rétt til að hafna greiðslunni og hætta við pöntunina.

7. ÖRYGGI VEFSVÆÐIS
Við setjum öryggi viðskiptavina okkar á oddinn. Við notum bestu tækni sem völ er á til að tryggja að allar greiðslur séu öruggar. Notast er við SSL kóðun til að tryggja dulkóðun kortanúmersins og annara persónugagna, en kóðunin uppfyllir ströngustu kröfur um gagnavernd á netinu. Undir lok pöntunarinnar flytur síðan þig yfir á https-svæði þar sem þú setur inn kortaupplýsingar. Kortaupplýsingar eru settar beint inn á svæði Borgunar ehf. og því er Sundskóli Sóleyjar aldrei handhafi slíkra upplýsinga. Við vistum sem sagt engar kortaupplýsingar á vefþjónum okkar eða vefsvæðum.
Gamlir vafrar geta verið öryggisógn og því mælum við alltaf með að notendur séu með nýjustu útgáfu af þeim vafra sem þeir kjósa að nota. Gamlir vafrarar geta einnig komið í veg fyrir þægileg, einföld og örugg viðskipti með því að “tala” ekki beint við vefsvæðið.

8. SENDINGAR
Við gerum okkar besta til að tryggja þér bestu og skjótvirkustu sendingarleiðir sem völ er á, en sendingartíminn veltur þó alltaf á staðsetningu viðtakanda. Einungis er sent innan Íslands ef ekki er um “sýndarviðskipti”, þe. kaup á námskeiðum að ræða, sem eingöngu fara fram á netinu.

9. BREYTINGAR Á PÖNTUN
Pantanir eru afgreiddar á virkum dögum kl. 8-16. Við mælum með því að þú yfirfarir pöntunina vel áður en þú lýkur við hana. Ef þú þarft að breyta pöntun eftirá getur hlotist af því viðbótarkostnaður. Vinsamlegast vísið í pöntunarnúmer ef breyta þarf pöntun og sendið allar fyrirspurnir á sundskoli@sundskoli.is.

10. ÁBYRGÐ OG SKULDBINDING
Vefverslun þessi er opin öllum en við erum ekki ábyrg fyrir rangri notkun síðunnar né erum við skuldbundin til að eiga alltaf allar vörutegundir til á lager. Við bjóðum upp á endurgreiðslu vara innan 14 daga frá kaupum ef viðkomandi er óánægður með vöruna, en greiðum ekki sendingarkostnað ef vörur eru sendar til baka. Athugið að taka þarf fram hvað það var sem að óánægja var með og pöntunarnúmer skal sent á netfangið sundskoli@sundskoli.is. Með því að kaupa námskeið og hlaða niður skírteini, ásamt því að taka við netpósti, með upplýsingum um kaupin er 14 daga skilafrestur hafinn.

Við hlökkum til að eiga skemmtileg og einlæg viðskipti við þig.
Sundskóli Sóleyjar
Kt. 2701642859
sími: 898 1496
netfang: sundskoli@sundskoli.is
www.sundskoli.is
www.facebook.com/sundskoli