Ef þig hefur dreymt um að svifa í gegnum vatnið á glæsilegan og að því er virðist áreynslulausan hátt – er skriðsundsnámskeið kannski eitthvað sem þig langar að prófa. Námskeiðin eru 8 skipti og er kennt tvisvar í viku. Veldu það tímabil, sem hentar þér best.
- Við biðjumst innilegrar afsökunar, en það er ekki hægt að kaupa þessa vöru.
Skriðsundsnámskeið
27,500 kr.
Lýsing
Æfingin skapar meistarann þegar kemur að skriðsundi eins og öðru. Ef þig hefur dreymt um að svifa í gegnum vatnið á glæsilegan og að því er virðist áreynslulausan hátt – er skriðsundsnámskeið kannski eitthvað sem þig langar að prófa. Námskeiðin eru 8 skipti og er kennt tvisvar í viku. Veldu það tímabil úr fellilistanum sem hentar þér best.
Á námskeiðinu er kennd rétt lega í vatninu, hvernig nota á höfuð, hendur og fætur með sem bestum árangri. Þú lærir að anda þegar það á við. Þú lærir grunntækni í skriðsundi og getur í framhaldinu fínpússað og fágað þinn eigin stíl.
Námskeiðið er fyrir fullorðna, karla og konur.
Kennslustaður:
Sundskóli Sóleyjar er með kennslulaug í Sundlaug Hrafnistu við Boðaþingi 5-7, 203 Kópavogi.
Boðið er uppá góða aðstöðu fyrir fullorðið fólk
Frekari upplýsingar
Veldu tímabil | janúar og febrúar, mars og apríl, maí og júní, september og október, nóvember og desember |
---|